Terms of service
Allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu. Öll ákvæði skilmálanna hér að neðan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir varnarþingi félagsins, Héraðsdómi Reykjavíkur. Eftirfarandi skilmálar gilda um viðskipti seljanda og kaupanda svo og um notkun á vefversluninni stokstudio.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annars vegar og kaupanda hins vegar. Þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir gilda um viðskiptin lög um neytendakaup nr. 48/2003 og eftir atvikum lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og lög um þjónustukaup nr. 42/2000.
Höfundarréttur
Allt efni á vefsíðu Stök Studio er eign fyrirtækisins. Allar vörur sem birtast hér á síðunni eru varðar með höfundarétti hönnuða og nytjaleyfi fyrirtækisins og má ekki með neinum hætti afrita né nýta á neinn annan hátt, samanber lögum um höfundarétt. Ekki má breyta, endurgera, fjölfalda, selja eða deila verkum, að hluta til eða í heilu lagi, með þriðja aðila án samþykkis höfundar. Þetta gildir einnig um drög og rafræn skjöl.
Vörur og þjónusta
Vörur í vefverslun okkar sem er sérmerkt eftir beiðni frá kaupanda eru handgerðar að einhverju- eða öllu leyti og hannaðar í samráði við viðskiptavin, má búast við því að lokaútkoma sé ekki nákvæmlega eins og hún birtist á síðunni.
Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verði á vöru án fyrirvara. Það verð gildir er fram kemur á pöntunarstaðfestingu kaupanda hverju sinni. Heildarkostnaður við kaup á vöru er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega.